Pharrell Williams og eiginkona hans, Helen Lasichan, voru í stíl á fremsta bekk á sýningu Chanel í seinustu viku. Bæði voru þau með tweed-jakka úr smiðju Chanel yfir öxlunum þar sem þau sátu á fremsta bekk og virtu fyrir sér nýjustu tískustrauma.
Bæði hafa þau brennandi áhuga á tísku og klæða sig gjarnan svipað. Chanel virðist vera í mestu uppáhaldi en Pharrell hefur leikið í auglýsingum fyrir tískuhúsið og mætir gjarnan í Chanel-dressi á stóra viðburði.