Engar tötraklæddar konur í Cannes

Kate Moss virkjaði sína innri gyðju á frumsýningu kvikmyndarinnar Loving, …
Kate Moss virkjaði sína innri gyðju á frumsýningu kvikmyndarinnar Loving, en hún klæddist eldrauðum kjól úr smiðju Halston. AFP

Eins og flestir vita stendur kvikmyndahátíðin í Cannes yfir. Ekki verður þverfótað fyrir stórstjörnum sem strunsa eftir rauða dreglinum, klæddar sínu fínasta pússi.

Hér er stiklað á stóru, enda stjörnurnar duglegar að skipta um klæðnað. 

Fleiri myndir má sjá á vef Stylist.

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian klæddist Lan Yu kjól þegar hún skellti …
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian klæddist Lan Yu kjól þegar hún skellti sér á De Grisogono fögnuðinn í Cannes. AFP
Fyrirsætan Bella Hadid klæddist buxnadragt úr smiðju Givenchy.
Fyrirsætan Bella Hadid klæddist buxnadragt úr smiðju Givenchy. AFP
Þýski leikarinn Lars Eidinger stillir sér upp við hlið Kristen …
Þýski leikarinn Lars Eidinger stillir sér upp við hlið Kristen Stewart á frumsýningu myndarinnar Personal Shopper. Stewart klæddist hvítum kjól frá tískuhúsinu Chanel. AFP
Hollenska fyrirsætan Lara Stone klæddist síðkjól úr smiðju Prada á …
Hollenska fyrirsætan Lara Stone klæddist síðkjól úr smiðju Prada á frumsýningu kvikmyndarinnar Julieta. AFP
Chloe Sevigny er þekkt fyrir fantaflottan fatastíl. Hér skartar hún …
Chloe Sevigny er þekkt fyrir fantaflottan fatastíl. Hér skartar hún hvítum kjól úr smiðju Chanel. AFP
Blake Lively geislaði í bláum kjól frá Atelier Versace, en …
Blake Lively geislaði í bláum kjól frá Atelier Versace, en eins og sjá má er leikkonan þunguð. AFP
Amal Clooney virtist eiga í stökustu vandræðum með Atelier Versace …
Amal Clooney virtist eiga í stökustu vandræðum með Atelier Versace kjólinn sinn. Eiginmaðurinn, George Clooney, var sem betur fer ekki langt undan. AFP
Julia Roberts tiplaði á tánum eftir rauða dreglinum.
Julia Roberts tiplaði á tánum eftir rauða dreglinum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál