Hrikalegasti klæðnaðurinn á Billboard

Hljómsveitin DNCE þótti sérlega ólekker.
Hljómsveitin DNCE þótti sérlega ólekker. AFP

Í gær voru Billboard-tónlistarverðlaunin veitt. Að sjálfsögðu var mikið um dýrðir og ekki þverfótað fyrir stórstjörnum á rauða dreglinum. Sumir voru þó betur klæddir en aðrir. 

Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail

Söngkonan Z Lala lét ekki lítið fyrir sér fara og …
Söngkonan Z Lala lét ekki lítið fyrir sér fara og mætti í þessum hástemmda kjól. Við kjólinn bar hún síðan forláta höfuðdjásn sem skyggði á útsýni þeirra sem voru svo ólukkulegir að standa fyrir aftan hana. AFP
Mörgum þótti Rihanna hafa slegið feilnótu, en hún mætti í …
Mörgum þótti Rihanna hafa slegið feilnótu, en hún mætti í súkkulaðibrúnum silkikjól úr smiðju Thierry Mugler. Kjóllinn var hluti af sumarlínu Muglers frá árinu 1988. Við kjólinn klæddist söngkonan síðan skóm frá Manolo Blahnik. AFP
Söngkonan Halsey klæddist hvítum kjól, alsettan skrauti og glingri, sem …
Söngkonan Halsey klæddist hvítum kjól, alsettan skrauti og glingri, sem ekki þótti hitta í mark. AFP
Kesha klæddist fjólublárri, bróderaðri buxnadragt sem ekki vakti mikla lukku …
Kesha klæddist fjólublárri, bróderaðri buxnadragt sem ekki vakti mikla lukku meðal tískuspekúlanta. AFP
Steven Tyler stillti sér upp á rauða dreglinum. Kappinn var …
Steven Tyler stillti sér upp á rauða dreglinum. Kappinn var í gríðarlegu stuði, en tískulöggum þótti fatnaður hans ekki hitta í mark. AFP
Grínistinn var klæddur í sitt fínasta púss, í skrautlegan jogging-galla, …
Grínistinn var klæddur í sitt fínasta púss, í skrautlegan jogging-galla, og vakti hárgreiðsla hans mikla kátínu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál