Óþægilega lík Kim Kardashian

Jelena Peric er tvífari Kim Kardashian.
Jelena Peric er tvífari Kim Kardashian. Ljósmynd/Instagram

Hin 24 ára gamla Jelena Peric hefur vakið athygli netverja fyrir útlit sitt en hún er þykir afar lík raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. Peric starfar sem förðunarfræðingur og er fædd og uppalin í Zagreb í Króatíu. Hún hefur um 700.000 fylgjendur á Instagram-síðu sinni bara vegna þess hvað hún er lík Kardashian. Sjálf er Peric ánægð með að líkjast Kardashian en segir það þó geta verið erfitt á köflum.

Peric hefur gefið út mörg kennslumyndbönd í förðun þar sem hún kennir fólki að mála sig eins og Kim Kardashian. Hún er gjarnan kölluð tvíburasystir Kardashian af netverjum. Þrátt fyrir að kenna fylgjendum sínum að mála sig líkt og Kardashian þarf Peric sjálf ekki að eyða jafnmiklu púðri í að farða sig eins og stjarnan þar sem hún hefur dökkt hár, fylltar varir og gyllta húð.

Jelena Peric er 24 ára gömul og kemur frá Króatíu.
Jelena Peric er 24 ára gömul og kemur frá Króatíu. Ljósmynd/Instagram

Á Instagram–reikningi sínum deilir Peric þó ekki einungis förðunarmyndböndum heldur hefur hún einnig verið dugleg við að sýna fylgjendum sínum sinn persónulega stíl sem þykir þó afar líkur smekk Kardashian. Í viðtali við Mail Online segir Peric að þó svo að hún sé ánægð með að líkjast stórstjörnunni geti það verið þreytandi til lengdar.

Peric segir að það geti verið þreytandi að líkjast Kardashian.
Peric segir að það geti verið þreytandi að líkjast Kardashian. Ljósmynd/Instagram

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál