Leikkonan Blake Lively á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum Ryan Reynolds seinna á þessu ári. Fyrir eiga hjónin tveggja ára dóttur sem ber nafnið James. Óléttustíll Lively hefur vakið verðskuldaða athygli en hann þykir afar fágaður og flottur.
Smartland Mörtu Maríu tók saman nokkrar myndir sem sýna glæsilegan óléttustíl leikkonunnar. Hún hefur verið áberandi á rauða dreglinum enda nýbúið að frumsýna myndirnar The Shallows og Café Society þar sem Lively fer með aðalhlutverk. Myndirnar af Lively tala sínu máli.