Glimmer-skreytt eyru nýjasta trendið

Ljósmynd/Instagram @violette_fr

Það heitasta í förðunarbransanum í dag er að farða á sér eyrun með alls kyns litum og glimmeri. Svo virðist sem þetta nýja förðunartrend sé að ryðja sér til rúms en það hefur verið áberandi á samfélagsmiðlinum Instagram. 

Samkvæmt vef InStyle birtist trendið fyrst árið 2014 á tískusýningu Anthony Vaccarello en varð síðan aftur áberandi á sýningu Opening Ceremony fyrir haustið 2016. Það er síðan franski förðunarfræðingurinn Violette sem hefur birt margar mismunandi útgáfur af trendinu á Instagram-síðu sinni.

Það verður fróðlegt að sjá hvort þetta nýja trend nái flugi hér á Íslandi en óhætt er að segja að það lífgi upp á heildarmynd förðunarinnar.   

Ljósmynd/Instagram @violette_fr
Ljósmynd/Instagram @nikahiemstra
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál