Við fengum Kristínu Guðmundsdóttur, fagurkera og nema við Listaháskóla Íslands, til þess að sýna okkur þrjú hentug dress fyrir verslunarmannahelgina.
Kristín byrjaði á því að klæðast léttum sumarfatnaði sem hentar vel fyrir þá sem ætla sér að eyða helginni í borginni. Því næst skellti hún sér í hlýja og góða úlpu og dress sem henta betur fyrir útihátíðirnar.
Hér klæðist Kristín hlýrri og góðri úlpu í hermannastíl, Levi's-gallabuxum og Doctor Martens-skóm. Veskið utan um hálsinn er frá merkinu Verivinci og sólgleraugun Ray-Ban.
Freyja Gylfa
Hér klæðist Kristín hlýrri peysu frá íslenska merkinu Varma og FRYE-stígvélum. Taskan er úr smiðju Day Birger Et Mikkelsen.
Ljósmynd/Freyja Gylfa
Kristín og Sómi tilbúin í verslunarmannahelgina.
Freyja Gylfa