Aðdáendur Justin Bieber þurfa ekki lengur að bíða í langri röð til að kaupa varning merktan kappanum því Bieber hefur nú hafið samstarf við tískufyrirtækið Forever 21. Varningurinn fyrir Purpose-tónleikaferðalag Bieber fer í sölu á mánudaginn á heimasíðu Forever 21 en hægt verður að nálgast hann í verslununum sjálfum 29. ágúst.
Línan samanstendur af átta vörum sem allar hafa einhverja tilvitnun í Bieber. Vörurnar verða á mjög viðráðanlegu verði og eiga því allir að geta keypt sér Bieber-varning sem vilja.
Íslandsvinurinn Bieber er á leiðinni til landsins en hann mun halda tónleika í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 8. september og föstudaginn 9. september.