Virkir í athugssemdum drulla yfir jakkann

Justin Bieber er hér í jakka frá JÖR.
Justin Bieber er hér í jakka frá JÖR. Ljósmynd/Skjáskot af Daily Mail

Besti vinur Íslands, Justin Bieber, sást í jakka  frá JÖR þar sem hann spókaði sig í París. Daily Mail greinir frá þessu. Virkir í athugasemdum í Bretlandi eru þó ekki á því að þessi jakki sé einhver snilld.

Guðmundur Jörundsson hönnuður JÖR var dálítið ánægður þegar hann rakst á frétt um Bieber þar sem hann var myndaður í París í jakkanum. Eins og sést á myndinni passar jakkinn vel við sólgleraugun. 

„Nei sko, haldiði ekki að nýi besti vinur minn Justin Bieber hafi skellt sér í nýja houndstooth jakkann sinn frá JÖR,“ segir hann og deilir fréttinni. 

„Mjög skemmtilegt að Bieberinn sé í Jör og allt það. Þetta dæmi hinsvegar er persónulega mitt uppáhald. Það er bara eitthvað alveg ólýsanlega stórkostlegt við tilhugsunina að einhver blússutuska, sem við bjuggum til, nái að gjörsamlega æra fólk af reiði á Daily Mail kommentakerfinu. Þetta er svona raðgæsahúðarmómen,“ segir hann í gamansömum tón. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál