Fyrirsætan Iman vakti heldur betur lukku á góðgerðarsamkomu God’s Love We Deliver-samtakanna á mánudaginn. Iman klæddist Micheal Kors frá toppi til táar en silfruðu glamúr-buxurnar vöktu hvað mesta athygli.
Glæsileikinn var við völd þetta kvöldið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Stjörnur á borð við Joan Smalls, Chrissy Tiegen og Anna Wintour mætti í sínu fínasta pússi og létu gott af sér leiða. Þess má geta að 2,6 milljónir Bandaríkjadala söfnuðust þetta kvöld, sú upphæð rennur til God’s Love We Deliver-samtakanna sem sér um að veita mataraðstoð til HIV-smitaðra sjúklinga í New York sem þurfa á því að halda.