Hefði varla geta valið dýrari kjól

Danika Yarosh fer með hlutverk í myndinni Jack Reacher: Never …
Danika Yarosh fer með hlutverk í myndinni Jack Reacher: Never Go Back. AFP

Leikkonan Danika Yarosh kom, sá og sigraði á rauða dreglinum á frumsýningu Jack Reacher: Never Go Back í London í gær. Hún klæddist glæsilegum síðkjól frá Roksanda og vakti mikla lukku. En það er ekki á allra færi að kaupa þennan glæsilega kjól því hann kostar 1,1 milljón krónur!

En Yarosh var ekki eina sem mætti spariklædd á frumsýninguna í gær, það gerðu líka þau Tom Cruise og Cobie Smulders sem fara með hlutverk í Jack Reacher-myndinni ásamt Yarosh.

Danika Yarosh var ansi smart á rauða dreglinum.
Danika Yarosh var ansi smart á rauða dreglinum. AFP
Cobie Smulders var flott að vanda.
Cobie Smulders var flott að vanda. AFP
Tom Cruise í sínu fínasta pússi.
Tom Cruise í sínu fínasta pússi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál