Þetta dress verður ekki keypt úti í búð

Bella Hadid í útgáfupartýi Dior.
Bella Hadid í útgáfupartýi Dior. AFP

Fyrirsætan Bella Hadid tryggði að allir tækju eftir henni í útgáfupartýi Dior Beauty á þriðjudaginn þegar útgáfu förðunarbókarinnar The Art of Color var fagnað í New York. Bella klæddist gegnsæjum topp og pilsi úr sumarlínu ársins 2016 frá Christian Dior. Dressið verður því ekki keypt úti í búð á næstunni.

Hönnun þessa sérstaka dress var í höndum nýjasta listræna stjórnanda Dior, Mariu Grazia Chiuri, sem er fyrsta konan sem hefur gegnt hlutverki listræns stjórnanda Dior síðan tískuhúsið leit fyrst dagsins ljós.

Bella var svo með „choker“-hálsmen og pallíettu-útgáfu af Lady Dior-töskunni frægu.

Bella Hadid klæddist dressi frá Christian Dior.
Bella Hadid klæddist dressi frá Christian Dior. AFP
Svona lítur bókin The art of Color út. Í henni …
Svona lítur bókin The art of Color út. Í henni er farið yfir förðunarsögu tískuhúss Dior.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál