Söngdrottningin Mariah Carey er ekki þekkt fyrir að ganga í efnismiklum klæðnaði, enda er hún hæstánægð með línurnar.
Þetta sýndi hún og sannaði þegar hún skellti sér út að borða í síðustu viku og klæddist þessum líka sérdeilis skrautlega kjól.
Það var þó einn hængur á. Á kjólnum var klauf, sem náði ansi hátt. Reyndar svo hátt að ef söngkonan hefði ekki verið í sokkabuxum og tilheyrandi hefði hennar allra heilagasta blasað við.