Katrín, hertogaynja af Cambrigde, er annáluð tískudrós enda er hún fyrirmynd kvenna út um allan heim.
Flíkurnar sem hún klæðist vekja gjarnan eftirtekt og seljast jafnan í hrönnum. Þar sem Katrín tilheyrir konungsfjölskyldunni eru sumar flíkurnar þó kostnaðarsamari en gengur og gerist, eins og sjá má á eftirfarandi lista sem tímaritið Elle tók saman.
Áætlaður kostnaður fatanna sem Katrín klæddist opinberlega á árinu er talinn vera í kringum 174 þúsund pund, eða rúmlega 24 milljónir íslenskra króna.
Sérsaumaður Jenny Packham-kjóll, 568 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Sérsaumaður kjóll úr smiðju Jenny Packham, 491 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Katrín klæddist þessum gullfallega blúndukjól frá Dolce & Gabbana í sumar, en hann kostaði 484 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Kápa úr smiðju Catherine Walker, 455 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Ljósblár kjóll frá Catherine Walker, 449 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Hertogaynjan er augljóslega hrifin af hönnun Catherine Walker, enda skartaði hún mörgum flíkum frá merkinu. Þessi græna kápa kostaði 420 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Í júní klæddist hertogaynjan kjól frá frá Jenny Packham, en hann kostaði 420 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Í júlí klæddist Katrín forláta blúndukjól frá Sophie Hallett, en hann kostaði litlar 420 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE
Í opinberri heimsókn sinni til Indlands í vor klæddist hertogaynjan pilsi og bol frá merkinu Temperley London. Dressið kostaði litlar 340 þúsund krónur.
Ljósmynd / skjáskot ELLE