10 glæsilegustu kjólar Katrínar

Glæsilegastur af öllum er líklegast sjálfur brúðarkjóllinn. Kjóllinn er að …
Glæsilegastur af öllum er líklegast sjálfur brúðarkjóllinn. Kjóllinn er að sjálfsögðu sérsaumaður, en hann er úr smiðju Alexander McQueen. Skjáskot Popsugar

Það er engum blöðum um það að frétta að Katrín Middleton, hertogaynja af Cambridge, er stórglæsileg en hún er af mörgum talin ein best klædda kona heims.

Fataskápur hertogaynjunnar er sneisafullur af alls kyns gersemum og skartar hún jafnan glæsilegum kjólum þegar hún fær tækifæri til.

Vefurinn Popsugar hefur tekið saman nokkra af glæsilegustu kjólum Katrínar og þeir eru svo sannarlega ekkert slor.

Árið 2014 skartaði Katrín þessum fallega, flöskugræna síðkjól úr smiðju …
Árið 2014 skartaði Katrín þessum fallega, flöskugræna síðkjól úr smiðju Jenny Packham. Skjáskot Popsugar
Þessi fallegi kjóll er einnig úr smiðju Jenny Packham, en …
Þessi fallegi kjóll er einnig úr smiðju Jenny Packham, en hertogaynjan klæddist honum árið 2014. Skjáskot / Popsugar
2014 var gott ár hjá Katrínu, og klæddist hún hverjum …
2014 var gott ár hjá Katrínu, og klæddist hún hverjum gullfallegnum kjólnum á fætur öðrum. Þessi er úr smiðju DVF. Skjáskot Popsugar
Jenny Packham er augljóslega í miklu uppáhaldi hjá hertogaynjunni. Þessum …
Jenny Packham er augljóslega í miklu uppáhaldi hjá hertogaynjunni. Þessum fallega kjól klæddist Katrín árið 2012. Skjáskot Popsugar
Árið 2015 klæddist Katrín undursamlegum kjól sem fór henni einstaklega …
Árið 2015 klæddist Katrín undursamlegum kjól sem fór henni einstaklega vel. Eins og svo oft áður var hann úr smiðju Jenny Packham. Skjáskot Popsugar
Þessi pallíettukjóll er einkar fallegur, en hertogaynjan klæddist honum árið …
Þessi pallíettukjóll er einkar fallegur, en hertogaynjan klæddist honum árið 2013. Enn á ný leitaði hún á náðir Jenny Packham. Skjáskot Popsugar
Katrín leit út eins og gyðja þegar hún mætti á …
Katrín leit út eins og gyðja þegar hún mætti á BAFTA-verðlaunin árið 2011. Kjóllinn er úr smiðju Alexander McQueen. Skjáskot Popsugar
Það er eiginlega vandræðalegt hversu oft Katrín velur kjóla úr …
Það er eiginlega vandræðalegt hversu oft Katrín velur kjóla úr smiðju Jenny Packham. Þessi mynd er frá árinu 2011. Skjáskot Popsugar
Hertogaynjan heimsótti Indland á síðasta ári og klæddist þessum fagra …
Hertogaynjan heimsótti Indland á síðasta ári og klæddist þessum fagra kjól frá Alice Temperley. Skjáskot Popsugar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál