Dóttir Coco Rocha í iglo+indi

Coco Rocha hringdi Nasdaq-bjöllunni. Dóttir hennar, Ioni, klæddist fötum frá …
Coco Rocha hringdi Nasdaq-bjöllunni. Dóttir hennar, Ioni, klæddist fötum frá iglo+indi.

Kanadíska fyrirsætan Coco Rocha hringdi Nasdaq-bjöllunni á dögunum í New York. Dóttir hennar var með í för og það vakti athygli að hún klæddist fatnaði frá íslenska barnafatamerkinu iglo+indi. Helga Ólafsdóttir, yfirhönnuður iglo+indi, segir að fyrirsætan hafi verið hérlendis í haust. 

Helga Ólafsdóttir yfirhönnuður iglo+indi.
Helga Ólafsdóttir yfirhönnuður iglo+indi. Ljósmynd/Saga Sig

 

„Coco Rocha var á Íslandi í haust með fjölskyldu sinni. Hún heillaðist af iglo+indi og okkur þykir gaman að sjá hversu mikið dóttir hennar notar iglo+indi-föt. Rocha er dugleg að birta myndir og myndbönd af Ioni dóttur sinni í hönnun okkar á samfélagsmiðlum. Ioni elskar m.a. Lunda-úlpuna og þegar hún hjálpaði mömmu sinni að hringja bjöllunni á Nasdaq var hún í Perlu-kjólnum okkar og svörtum leggings frá iglo+indi,“ segir Helga og bætir við: 

„Ætli Ioni sé ekki yngsti einstaklingur sem hefur hringt bjöllunni hjá Nasdaq. Hún er flottur framtíðarleiðtogi.“

 Ioni Conran er með sinn eigin Instagram-reikning eins og sjá má hér fyrir neðan: 

Winter #2!

A post shared by Ioni James Conran (@ioniconran) on Nov 6, 2016 at 7:03am PST

 

Mæðgurnar Coco Rocha og Ioni.
Mæðgurnar Coco Rocha og Ioni.
Coco Rocha hringdi Nasdaq-bjöllunni.
Coco Rocha hringdi Nasdaq-bjöllunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál