Poppdrottningin Beyoncé er þekkt fyrir glæsilegan fatastíl og klæðist hún jafnan hverri dásamlegri flíkinni á fætur annarri.
Á dögunum skellti hún sér á körfuboltaleik með fjölskyldunni, og klæddist forláta silki-kimono frá ítalska tískuhúsinu Gucci.
Frétt mbl.is: Geislaði í Gucci-slopp
Klæðnaður fimm ára dóttur hennar, Blue Ivy, var heldur ekkert slor en sú litla klæddist skærgrænum kjól, sem einnig er úr smiðju Gucci. Kjóllinn kostar 1.700 dollara, sem samsvarar 189 þúsund íslenskum krónum, og fer stúlkunni einstaklega vel.