Verstu Óskarsdressin í gegnum tíðina

Dressið hennar Demi Moore sló aldeilis ekki í gegn.
Dressið hennar Demi Moore sló aldeilis ekki í gegn. Skjáskot / ET

Óskarsverðlaunin eru handan við hornið, þar sem það besta sem er að gerast í kvikmyndum er verðlaunað í bak og fyrir.

Kvikmyndir eru þó ekki það eina sem er í forgrunni, því tískuspekúlantar fylgjast jafnan grannt með því sem stórstjörnurnar klæðast á rauða dreglinum.

Stjörnurnar eru jafnan klæddar í sitt fínasta púss, en sitt sýnist hverjum. Enterteinment Tonight hefur tekið saman nokkur dress sem ekki hlutu náð fyrir augum tískuelítunnar.

Árið 1989 mætti Demi Moore í dressi sem hún hannaði …
Árið 1989 mætti Demi Moore í dressi sem hún hannaði sjálf. Margir höfðu þó orð á því að hún ætti að halda sig við leiklistina. Skjáskot / ET
Kjóllinn sem Geena Davis klæddist árið 1992 vakti ekki stormandi …
Kjóllinn sem Geena Davis klæddist árið 1992 vakti ekki stormandi lukku. Skjáskot / ET
Cher fer sjaldan troðnar slóðir í fatavali, eins og sást …
Cher fer sjaldan troðnar slóðir í fatavali, eins og sást á hátíðinni árið 1998, þegar hún mætti í gegnsærri múnderingu frá Bob Mackie. Skjáskot / ET
Whoopi Goldberg mætti í ævintýralegu dressi á hátíðina árið 1993.
Whoopi Goldberg mætti í ævintýralegu dressi á hátíðina árið 1993. Skjáskot / ET
Céline Dion klæddist hvítri buxnadragt frá Christian Dior og kúrekahatt …
Céline Dion klæddist hvítri buxnadragt frá Christian Dior og kúrekahatt þegar hún skellti sér á Óskarinn árið 1999. Skjáskot / ET
Kántrýsöngkonan Faith Hill þótti ekki sérlega smart þegar hún mætti …
Kántrýsöngkonan Faith Hill þótti ekki sérlega smart þegar hún mætti í afar skrautlegum kjól frá Versace á Óskarinn árið 2002. Skjáskot / ET
Hilary Swank sló ekki í gegn þegar hún mætti á …
Hilary Swank sló ekki í gegn þegar hún mætti á bleikum Dior-kjól á verðlaunin árið 2003. Skjáskot / ET
Margir höfðu orð á því að kjóllinn sem Uma Thurman …
Margir höfðu orð á því að kjóllinn sem Uma Thurman klæddist á hátíðinni árið 2004 minnti á sjóræningjabúning. Sú var þó ekki raunin, enda var hann úr smiðju Christian Lacraoix. Skjáskot / ET
Heidi Klum klæddist lillabláum tjullkjól úr smiðju Marchesa á síðustu …
Heidi Klum klæddist lillabláum tjullkjól úr smiðju Marchesa á síðustu hátíð, sem ekki féll í kramið hjá tískulögreglunni. Skjáskot / ET
Dior-kjóllinn sem Charlize Theron klæddist á Óskarnum árið 2010 sló …
Dior-kjóllinn sem Charlize Theron klæddist á Óskarnum árið 2010 sló ekki í gegn og þóttu rósirnar sem hylja barm leikkonunnar ekki sérlega vel lukkaðar. Skjáskot / ET
Kjóll Bjarkar Guðmundsdóttur ratar á flesta lista yfir ljótustu kjóla …
Kjóll Bjarkar Guðmundsdóttur ratar á flesta lista yfir ljótustu kjóla Óskarsverðlaunanna, en blaðamaður er þó hreint ekki sammála. Skjáskot / ET
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál