„Walk-in“ bolur Bjarka Thors frumsýndur

Sara María Júlíusdóttir og Bjarki Thor Pálsson.
Sara María Júlíusdóttir og Bjarki Thor Pálsson.

Lengi hefur verið hefð fyrir því að bardagafólk gangi inn í salinn í sérhönnuðum t-bolum sem jafnan eru hannaðir, framleiddir og seldir í takmörkuðu upplagi í kringum hvern og einn bardaga viðkomandi bardagamanns. Þessir bolir eru í hinum stóra heimi kallaðir „walk-in“ bolir og þykja æði töff. Nú hefur fyrsta slíka flík Bjarka Thors Pálssonar, bardagamanns úr Mjölni, litið dagsins ljós.

Bolurinn er hannaður af fatahönnuðinum Söru Maríu Júlíudóttur sem gjarnan starfar undir merkinu Forynja og er mikil ánægja með afraksturinn. Bjarki Thor (2-0) mætir Bretanum Alan Procter í sínum þriðja atvinnubardaga næstu helgi í London. Margir Íslendingar munu fylgja honum í orrustuna og herma nýjustu tölur að rúmlega 50 Íslendingar hafi keypt sér flugmiða til að verða viðstaddir bardagann. Eru því umtalsverðar líkur á að það verði þónokkrir í bolnum góða í salnum.

„Ástæðan fyrir því að ég vildi kýla á þetta var sú að það voru svo margir sem voru að segja mér að þeir ætluðu að koma út og öskra mig áfram. Það er enginn landsliðsbúningur í MMA þannig að ég tók einhliða ákvörðun um að minn fyrsti bolur fengi þá bara að vera staðgengill hans, í það minnsta í þetta skiptið,“ segir Bjarki Thor og hlær og bætir svo við:

„Það verður ekkert smá gaman að horfa út úr búrinu og sjá nokkra grjótharða víkinga í bolnum. Ég er nokkuð viss um að það eigi eftir að kveikja vel í mér og það á hárréttu augnabliki.“

Bjarki Thor og Sara María hafa þekkst lengi þar sem bæði hafa æft í Mjölni um árabil. Sara flutti hinsvegar til Spánar og bjó þar í tvö ár og eru eingöngu nokkrir mánuðir frá því að hún flutti aftur heim.

„Þegar Sara sneri aftur þá hafði hún samband við mig upp á það að koma í þjálfun til mín. Það var nú auðsótt,“ segir Bjarki Thor.

„Ég var kominn á flug með þessi bolamál en var alveg tómur á það hver gæti unnið þetta með mér. Ég bar þetta undir umboðsmanninn minn og hann var ekki lengi að benda mér á að ég væri nú að þjálfa og í daglegu sambandi við ansi heppilegan samstarfsaðila. Magnað hvað maður leitar stundum langt yfir lækinn til að finna vatnið,“ segir hann. 

Sara María er flestum hérlendum áhugamönnum um fatahönnun að góðu kunn. Hún hefur hannað flíkur undir merkinu Forynja um talsvert skeið og hefur myndað sér ákveðna sérstöðu í að þrykkja grafík á flíkur.

„Ég varð strax spennt þegar Bjarki bar þessa hugmynd undir mig. Fyrir það fyrsta þá hef ég afar hátt álit á honum sem vini, bardagamanni, þjálfara og bara sem manneskju. Og svo hefur mig lengi langað til að hanna „walk-in“ bol. Við köstuðum hugmyndunum aðeins á milli og ég fór síðan bara af stað. Ég fékk hann Geira (Sig Vicious) vin minn til að vinna leturframsetninguna og þaðan fór ég í að gera tilraunir með að þrykkja á bolina, prófa litasamsetningar og þessháttar. Ég sá strax að þetta lofaði góðu,“ segir Sara María.

Þegar Bjarki Thor fékk að sjá bolinn í fyrsta skipti þá var það ást við fyrstu sýn.

„Ég hefði ekki getað gert þetta betur sjálfur. Ég er að grínast - ég hefði náttúrlega bara ekkert getað gert þetta sjálfur. Sara er alveg fáránlega fær í sínu fagi og henni tókst að gera eitthvað sem er svo miklu flottara en ég hefði nokkurntímann getað látið mig dreyma um. Þetta er verkefni sem við getum bæði verið stolt af langt fram veginn og vonandi er þetta bara upphafið að langtímasamstarfi okkar í milli,“ segir hann.

Þar sem bolirnir eru handþrykktir þá eru engir tveir alveg eins sem vissulega er skemmtileg staðreynd. Bolirnir verða til í bæði svörtum og hvítum lit, en upplagið verður takmarkað þannig að það er um að gera að tryggja sér sinn bol sem fyrst. Hægt er að kaupa bolina í gegnum vefsíðu Bjarka Thors: www.thorpalsson.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál