Stjörnurnar sem mættu á frumsýningu Guardians of the Galaxy 2 í London áttu það sameiginlegt að vera klæddar í svart. Kjólar kvennanna voru mismunandi þrátt fyrir að vera svartir og engin var í eins kjól.
Zoe Saldana, aðalleikkona myndarinnar, mætti í fallegum svörtum kjól.
Breska leikkonan Karen Gillan fer með hlutverk í myndinni. Hún mætti í stuttum svörtum skvísukjól.
Leikkonan Anna Faris og eiginkona Chris Pratt sem fer með hlutverk í myndinni klæddist dökkum síðkjól í einföldu sniði.
Pom Klementieff fer með hlutverk í myndinni og var hún mætt í skemmtilegum stuttum kjól.
Leikkonan Anita Dobson og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Brian May, mættu bæði í svörtu eins og hinar stjörnurnar.