Nicole Kidman stal senunni á sunnudaginn þegar kvikmyndin The Beguiled var frumsýnd en hún klæddist guðdómlegum blómakjól frá Carolina Herrera.
Blómin voru bróderuð á kjólinn og koma þau einstaklega vel út á ljósbláum kjólnum. Bleiku ermarnar tóna síðan vel við blómin.
Blómamynstur hafa verið áberandi í sumar og er skemmst að minnast fokdýra blómajakkans sem Melania Trump klæddist fyrir nokkrum vikum.
Blómamynstur og bróderuð blóm eru vinsæl núna og það þarf ekki að reiða fram háar fjárhæðir eins og Nicole Kidman og Melania Trump gera til þess að eignast slíka flík. En það er hægt að fá blómakjóla, jakka og boli í búðum á borð við Zarah og Lindex.