Brjóstahandklæði sem eru að gera allt tryllt

Brjóstahandklæðin eru einföld en sniðug lausn.
Brjóstahandklæðin eru einföld en sniðug lausn. skjáskot/Instagram

Erin Robertson fann upp á brjóstahandklæðunum sem eru að gera allt vitlaust á netinu þessa dagana. Hugmyndina fékk hún þegar hún var að gera sig til fyrir stefnumót. 

Á heimasíðu sinni segir Robertson frá því að hún hafi ekki hætt að svitna þegar hún kom út úr sturtunni og fór að gera sig til enda hafi verið sumar og loftræstingin biluð. Hún reyndi ýmislegt, meðal annars að setja blautþurrkur undir brjóstin og púðra barnapúðri á sig. Hún hugsaði með sér að það hlyti að vera til betri leið. 

Eftir að hafa hugsað um vandamálið á meðan stefnumótinu stóð kom hún heim til sín og fór að googla enda fannst henni ólíklegt að hún væri sú eina sem glímdi við það að svitna undir brjóstunum. Hún fann þó enga lausn. Þegar hún lá í rúminu seinna um kvöldið fékk hún þá snilldarhugmynd að hanna brjóstahaldarahandklæðin. 

Handklæðing sem eru kölluð Ta Ta Towels eru tilvalin fyrir þær konur sem vilja ganga um án brjóstahaldara og án þess að svitna. En Robertson segir að handklæðin séu líka vinsæl hjá konum með börn á brjósti. 

Nú er bara að bíða og sjá hvort að brjóstahandklæðin nái útbreiðslu á Íslandi enda glímum við ekki við það vandamál að það sé of heitt á sumrin.

Handklæðin nýtast mjög vel þegar heitt er í veðri.
Handklæðin nýtast mjög vel þegar heitt er í veðri. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál