Fyrirsætuförðun á tveimur mínútum

Kendall Jenner eyðir aðeins tveimur mínútum á dag í að …
Kendall Jenner eyðir aðeins tveimur mínútum á dag í að farða sig. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan og ofurfyrirsætan Kendall Jenner þarf aðeins tvær mínútur í að mála sig á morgnana en hún deildi morgunrútínu sinni með lesendum Vogue.

Með hárið sleikt aftur í snúð sýnir Jenner okkur hvernig hún byrjar á því að setja á sig þunnt lag af meiki með förðunarbursta.

„Ég hef málað mig í bílum og kömrum,“ segir hún og hlær á meðan hún setur á sig hyljara  sem hún blandar við meikið með fingrunum.

Síðan skerpir hún á augabrúnum sínum með augabrúnapensli og minnist á það þegar hún var 14 ára og með allt of þunnar augabrúnir. Næst er það sólarpúður sem hún notar bæði á kinnbeininn og á augnlokið. 

Í lokin klárar hún förðunina með smá maskara og örlitlum varalit. Hún tekur það fram að hún noti aldrei mikinn varalit en dempi honum bara létt á varirnar. Svo skellir hún smá glossi yfir og lítur glæsilega út. 

Hér er hægt að sjá myndbandið í heild sinni: 

Kendall Jenner er alltaf stórglæsileg og það er, að því …
Kendall Jenner er alltaf stórglæsileg og það er, að því er virðist, áreynslulaust. skjáskot/instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál