Það má segja að Nicole Kidman hafi fylgt í fótspor Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrrverandi forsætisráðherra á Emmy-verðlaunahátíðinni á dögunum.
Sigmundur Davíð mætti eftirminnilega í einum svörtum spariskó og einum svörtum Nike-skó þegar hann fundaði með Barrack Obama og forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna árið 2013 í Stokkhólmi. Þó svo að skórnir sem Kidman var í á rauða dreglinum voru ekki eins voru þeir þó af sama parinu.
Skór Kidman eru frá Calvin Klein og eru bara með kristalsskrauti á tábandinu á öðrum skónum á meðan kristalsskrautið er á ökklabandinu á hinum skónum. Smekkkona hún Kidman þó svo að hún hugsi kannski alveg jafn mikið út fyrir rammann og Sigmundur Davíð. Hver sagði að listamenn væru frumlegir? Hvað eru stjórnmálamenn þá?