Baðar sig aðeins einu sinni í viku

Leyndarmálið að unglegu útliti hinnar 76 ára gömlu Vievenne Westwoood …
Leyndarmálið að unglegu útliti hinnar 76 ára gömlu Vievenne Westwoood er að fara í bað einu sinni í viku. mbl.is/AFP

Fatahönnuðurinn Vivienne Westwood ráðlagði fólki að þvo sér ekki of oft þegar hún var spurð út í unglegt útlit sitt á tískuvikunni í París en fatahönnuðurinn er 76 ára. 

The Guardian greinir frá því að eiginmaður hennar, Andreas Kronthaler, sem er 51 árs hafi bætt því við að hún færi bara í bað einu sinni í viku. Það þykir þó bara nokkuð oft í samanburði við baðvenjur Kronthaleren en hann segist þvo sér einu sinni í mánuði. 

Westwood hefur áður sagt að hún sé ekki vön því að fara í sturtu, hún þrífi bara líkamsparta sína og drífi sig út. 

Westwood er mikill umhverfisverndarsinni, hún er grænmetisæta og hefur gagnrýnt hversu mikið vatn fari í það að framleiða kjöt. Það getur því verið að umhverfissjónarmið spili inn í hversu oft hún baðar sig. 

Vivienne Westwood og eiginmaður hennar Andreas Kronthaler.
Vivienne Westwood og eiginmaður hennar Andreas Kronthaler. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál