Við elskum þetta úr ERDEMxHM

Við erum algerlega að tryllast yfir þessum bláu eyrnalokkum.
Við erum algerlega að tryllast yfir þessum bláu eyrnalokkum.

ERDEMxHM línan mun mæta til Ísland 2. nóvember. Hér er hægt að sjá hvaða hlutir úr línunni heilla okkur mest! 

Tískuhúsið ERDEM er þekkt fyrir sín fantaflottu blómamunstur sem eru svo kvenleg og heillandi að það hálfa væri nóg. Línan er klæðileg og rómantísk og er þannig að hægt er að vera rósóttur frá toppi til táar nú eða nota blóma-og blúnduflíkurnar við einfaldari fatnað. 

Þessi klútur passar við nánast hvað sem er.
Þessi klútur passar við nánast hvað sem er.
Þessi slaufa gerir einföld og látlaus föt sparileg.
Þessi slaufa gerir einföld og látlaus föt sparileg.
Það er nett Dorrit Moussaieff í þessum jakka.
Það er nett Dorrit Moussaieff í þessum jakka.
Þessi skyrta keyrir upp hamingjuna og gleðina.
Þessi skyrta keyrir upp hamingjuna og gleðina.
Konur sem fíla hlébarðamunstur eiga eftir að kunna að meta …
Konur sem fíla hlébarðamunstur eiga eftir að kunna að meta þessa kápu.
Þessi kjóll er flottur við há stígvél og sokkabuxur eða …
Þessi kjóll er flottur við há stígvél og sokkabuxur eða bara yfir gallabuxur.
Þær sem eru veikar fyrir plíseringum hafa fundið jólakjólinn í …
Þær sem eru veikar fyrir plíseringum hafa fundið jólakjólinn í ár.
Þessi dragt minnir á níunda áratuginn þegar upparnir voru að …
Þessi dragt minnir á níunda áratuginn þegar upparnir voru að meika það. Það er svo sannarlega töluverð valdefling í þessari dragt.
Það má greinilega vel sameina þægindi og glamúr.
Það má greinilega vel sameina þægindi og glamúr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál