Nýtt útlit hertogaynjunnar vekur lukku

mbl.is/AFP

Katrín hertogaynja mætti með nýja hárgreiðslu þegar hún og eiginmaður hennar, Vilhjálmur Bretaprins, tóku þátt í góðgerðarviðburði sem haldinn var á Paddington-lestarstöðinni í Lundúnum í dag, mánudag. 

Eftir langa inniveru er ólétta hertogaynjan loks komin á stjá og hittu hún og Vilhjálmur Bretaprins leikara og aðstandendur nýjustu Paddington-kvikmyndarinnar ásamt börnum sem njóta góðs af góðgerðarfélögum sem þau styðja.

Katrín skartaði ekki bara afar smekklegum bleikum kjól frá Orla Kiely heldur skartaði hún einnig nýrri hárgreiðslu. Styttri lokkar virðast vera að koma inn í vetur og er hertogaynjan að sjálfsögðu með puttana á púlsinum hvað það varðar. 

Katrín skemmti sér konunglega og virtist nokkuð hress.
Katrín skemmti sér konunglega og virtist nokkuð hress. mbl.is/AFP
Stuttu lokkarnir fara henni vel.
Stuttu lokkarnir fara henni vel. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál