Dressið sem fær sólina til þess að fölna

Blake Lively tekur sig vel út í gulu frá toppi …
Blake Lively tekur sig vel út í gulu frá toppi til táar. skjáskot/Instagram

Stjarnan Blake Lively skein heldur betur skært þegar hún mætti í gulu frá toppi til táar í sjónvarpsþáttinn Good Morning America á mánudag.  

Buxurnar og peysan eru frá Biran Maxwell. Lively tók útlitið alla leið og klæddist gullituðum skóm við frá Charlotte Olympia

Super casual. 💅Nails by the queen @enamelle

A post shared by Blake Lively (@blakelively) on Oct 16, 2017 at 6:15am PDT

Leikkonan er að kynna nýjustu kvikmynd sína og er bókuð á hinum ýmsu stöðum. Það þýðir ekki fyrir hana að mæta í sömu fötunum í mismunandi viðtöl og samkvæmt Elle sást leikkonan í sjö mismunandi dressum þennan daginn. 

Þrátt fyrir að flíkurnar hafi verið hverri annarri fallegri er spurning hvort karlkyns leikari í hennar stöðu hefði skipt svo ört um föt?

Það er mikið á sig lagt þegar verið er að …
Það er mikið á sig lagt þegar verið er að kynna eina kvikmynd. skjáskot/Instagram
Blake Lively er mikið fyrir dragtir þessa dagana.
Blake Lively er mikið fyrir dragtir þessa dagana. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál