Jakkinn sem Katrín elskar

Katrín hertogaynjan á tvo eins jakka til skiptanna.
Katrín hertogaynjan á tvo eins jakka til skiptanna. Samsett mynd

Katrín hertogaynja er greinilega hrifinn af Philosophy di Lorenzo Serafini-jakkanum sínum, eða öllu heldur jökkunum í fleirtölu. Katrín á nefnilega ekki einn heldur tvo. 

Í febrúar á þessu ári mætti hún í rauðum tvíhnepptum jakka frá merkinu. Við jakkann var hún í svörtum rúllukragabol, þröngum svörtum gallabuxum og stígvélum. Nú meira en hálfu ári seinna mætti hún í bláu útgáfunni af jakkanum, einnig í rúllukragabol og þröngum svörtum gallabuxum, ökklastígvél urðu hins vegar fyrir valinu í þetta skiptið. 

Ef manni líkar eitthvað af hverju ekki bara eiga það í tveimur litum? Hins vegar eru ekki allir sem eiga efni á Philosophy di Lorenzo Serafini-jakka, hvað þá tveimur.  Jakkinn kostar 760 pund eða rúmlega 105 þúsund íslenskar krónur. 

Jakkinn er klassískur og hentar við hin ýmsu tilefni.
Jakkinn er klassískur og hentar við hin ýmsu tilefni.
Jakkinn fer Katrínu vel.
Jakkinn fer Katrínu vel. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál