Klæddist 500 þúsund króna ullarslopp

Melania Trump í ullarkápunni.
Melania Trump í ullarkápunni. mbl.is/AFP

Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna mætti í hlýjum fötum í opinbera heimsókn til Japans ásamt eiginmanni sínum Donald Trump. Frú Trump klæddist rándýrri ullarkápu frá tískuhúsinu Fendi. 

Kostar ullarkápan 4.800 dollara á vefversluninni Farfetch sem samsvarar rúmlega 510 þúsund íslenskum krónum. Forsetafrúin fór ekki úr kápunni og notaði hana eins og kjól. 

Frú Trump var þó ekki á nærfötunum einum saman innan undir kápunni en InStyle greinir frá því að hún hafi verið í svörtum bol og leðurpilsi frá Hervé Pierre. Manolo Blahnik-hælar fullkomnuðu síðan útlitið. 

Það var stíll á Trump-hjónunum í Japan.
Það var stíll á Trump-hjónunum í Japan. mbl.is/AFP
Forsætisráðherrafrú Japans tók vel á móti Melaniu Trump.
Forsætisráðherrafrú Japans tók vel á móti Melaniu Trump. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál