Silfraður síðkjóll úr satíni virkar alltaf vel við hátíðleg tilefni, þetta eru leikkonurnar Angelina Jolie og Blake Lively með á hreinu.
Angelina Jolie klæddist fáguðum silfruðum langermakjól á á Hollywood Film Awards um helgina. Jolie var stórglæsileg í kjólnum sem Daily Mail segir vera frá Jenny Peckham en meðal aðdáenda Peckham er til dæmis Katrín hertogaynja.
Kjóllinn minnir á kjólinn sem önnur Hollywood-leikkona, Blake Lively, klæddist í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu í fyrra. Lita- og efnisvalið er ekki ósvipað auk þess sem að báðir kjólarnir er teknir saman með slaufu í mittinu.
Kjóll Lively var frá merkinu Ralph & Russo samkvæmt Cosmopolitan og var hann aðeins djarfari og nútímalegri. Hann var fleginn með hárri klauf auk þess sem hann var opinn í axlirnar þrátt fyrir að vera langerma.
Kjóll í þessum stíl ætti ekki að klikka yfir hátíðirnar í næsta mánuði.