„Þetta var mjög sársaukafullt,“ segir hin 18 ára Yrja Ás Baldvinsdóttir sem prófaði, ásamt systur sinni, að stækka varirnar á sér með flösku. Þessi aðferð, að láta varirnar sogast ofan í flösku þar til þær bólgna, virðist vera orðin nokkuð vinsæl hjá ungum stelpum sem láta sig dreyma um stórar og þrýstnar varir.
„Ég vildi bara prófa hvernig þetta væri og sjá útkomuna. Þetta var fyrsta skiptið okkar og ég geri þetta ekki aftur. Ég varð blá á vörunum en það fór bara sama dag. Eftir að við settum þessa mynd inn á Beautytips facebook-hópinn þá er ég búin að sjá nokkrar stelpur sem eru að „herma“ eftir okkur,“ úrskýrir Yrja og hlær.
Þórdís lýtalæknir segir þetta hættulegt
„Jæja, allt er nú til. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri um þetta,“ segir Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir. „Þetta er vissulega varasamt og án efa hættulegt ef þetta er gert endurtekið og í of langan tíma. Varirnar bólgna upp og verða bláleitar af blóði. Svo er líklega hægt að missa tilfinningu og fá drep í varirnar. Stórhættulegur leikur,“ segir Þórdís sem mælir eindregið gegn því að fólk stundi þetta.