Stjarnan og Valur áttust við í úrslitum VISA-bikars kvenna í knattspyrnu kl. 16 á Laugardalsvelli. Valur var handhafi bikarmeistaratitilsins en Stjarnan hafði aldrei landað titlinum. Valur varði titil sinn en sjálfsmark á 12. mínútu réði úrslitum í leiknum. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Byrjunarlið Stjörnunnar: Sandra Sigurðardóttir, Katie McCoy,
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir,
Kristrún Kristjánsdóttir, Margrét Guðný Vigfúsdóttir, Inga Birna
Friðjónsdóttir, Laura King, Anna Björk Kristjánsdóttir, Lindsey
Schwartz, Írunn Þorbjörg Aradóttir.
Byrjunarlið Vals: María Björg Ágústsdóttir, Pála Marie
Einarsdóttir, Rakel Logadóttir, Katrín Jónsdóttir, Kristín Ýr
Bjarnadóttir, Dóra María Lárusdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Dagný
Brynjarsdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir,
Embla Sigríður Grétarsdóttir.