Carragher gæti hætt innan tveggja ára

Jamie Carragher.
Jamie Carragher. Reuters

Jamie Carragher varnarmaðurinn sterki hjá Liverpool segir að hann muni hugsanlega leggja skóna á hilluna innan tveggja ára en Carragher hefur verið í eldlínunni allar götur frá því árið 1997.

Carragher, sem er 33 ára gamall, hefur leikið 676 leiki fyrir Liverpool og er annar leikjahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins á eftir Ian Callaghan.

,,Þú vilt reyna að fá eins mikið út úr fótboltanum og minn tími kemur á næstu 12 til 18 mánuðum eða eftir tvö ár. Ég hef tekið fyrsta stigið í þjálfun enda elskar maður leikinn og vill vera viðloðandi hann,“ sagði Carragher.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert