Þórsarar í undanúrslit

Ármann Pétur Ævarsson skoraði fyrir Þór.
Ármann Pétur Ævarsson skoraði fyrir Þór. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Þórsarar eru komnir í undanúrslit í Lengjubikarnum í knattspyrnu eftir að hafa lagt Keflvíkinga að velli í Boganum í kvöld.

Úrslitin réðust í vítakeppni en staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 2:2. Ekki var farið í framlengingu. Elías Már Ómarsson og Hörður Sveinsson komu Keflavík yfir snemma leiks en þeir Þórður Birgisson og Ármann Ævar Pétursson jöfnuðu metin fyrir Þórsara og kom jöfnunarmark Ármanns úr vítaspyrnu á lokamínútu leiksins.

Markaskorararnir eru fengnir á urslit.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert