Undanúrslitin í Lengjubikarnum á mánudaginn

Rúnar Kristinsson og Heimir Guðjónsson. Lið þeirra, KR og FH, …
Rúnar Kristinsson og Heimir Guðjónsson. Lið þeirra, KR og FH, mætast í undanúrslitunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Undanúrslitin í Lengjubikar karla í knattspyrnu fara fram á mánudaginn, annan í páskum.

KR og FH eigast við í gervigrasi KR-inga klukkan 15 og klukkan 16 eigast við Þór og Breiðablik í Boganum á Akureyri. Sigurliðin úr þessum leikjum leika svo til úrslita í Egilshöllinni sunnudaginn 27. apríl.

Breiðablik á titil að verja en liðið sigraði Val í úrslitum í fyrra, 3:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert