Hólmbert á bekknum á afmælisdaginn

Hólmbert Aron Friðjónsson með treyju Celtic.
Hólmbert Aron Friðjónsson með treyju Celtic. Ljósmynd/celticfc.net

Hólmbert Aron Friðjónsson var meðal varamanna hjá skoska meistaraliðinu Celtic í dag sem gerði 3:3-jafntefli við Motherwell á útivelli. Hólmbert kom ekkert við sögu í leiknum.

Motherwell komst í 2:0 með mörkum frá John Sutton og Zaine Francise-Angol, en Celtic snéri taflinu sér í vil með því að skora þrjú mörk í röð og komast í 3:2. Anthony Stokes, Georgios Samaras og varamaðurinn Leigh Griffiths skoruðu mörk Celtic. Það var svo John Sutton sem jafnaði metin fyrir Motherwell í uppbótartíma venjulegs leiktíma og tryggði Motherwell 3:3-jafntefli.

Celtic tryggði sér skoska meistaratitilinn fyrir nokkru síðan, en liðið hefur aðeins tapað einum deildarleik í vetur.

Hólmbert Aron hefur að undanförnu verið í leikmannahóp Celtic en ekki enn komið við sögu. Hólmbert fagnar í dag 21 árs afmæli sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert