Stjarnan leikur til úrslita í deildabikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Lengjubikarnum, en Garðabæjarliðið sigraði Val, 2:0, í undanúrslitunum á heimavelli sínum, Samsungvellinum, í kvöld.
Stjarnan, sem vann Val, 4:0, í úrslitaleik keppninnar fyrir ári síðan, skoraði bæði mörkin í seinni hálfleik. Rúna Sif Stefánsdóttir gerði það fyrra og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir það síðara.
Stjarnan mætir annaðhvort Breiðabliki eða Þór/KA í úrslitaleiknum í Egilshöllinni á sunnudagskvöldið en leikur þeirra fer fram í Fífunni í Kópavogi á morgun klukkan 18.