Úrslitaleiknum seinkað um sólarhring

Úrslitaleik FH og Stjörnunnar í Lengjubikarnum hefur verið seinkað um …
Úrslitaleik FH og Stjörnunnar í Lengjubikarnum hefur verið seinkað um sólarhring. Ómar Óskarsson

Úrslitaleik Lengjubikars karla í knattspyrnu sem fram átti að fara á morgun hefur verið frestað um sólarhring, þar til klukkan 19 á föstudag. Leikurinn fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. 

Ástæða þess að leiknum er frestað um sólarhring er sú að þjálfarar liðanna verða uppteknir af fjölskylduástæðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert