Jovanovski til Djúpmanna

Goran Jovanovski í leik með Keflavík gegn Fylki árið 2011.
Goran Jovanovski í leik með Keflavík gegn Fylki árið 2011. mbl.is/Árni Sæberg

Goran Jovanovski, knattspyrnumaður frá Makedóníu sem lék með Keflvíkingum fyrir þremur árum, er genginn til liðs við 1. deildarlið BÍ/Bolungarvíkur.

Jovanovski er 33 ára  gamall og kom til Keflavíkur vorið 2011. Hann spilaði með liðinu fram í júlí, níu leiki í úrvalsdeildinni, en hélt þá aftur heimleiðis.

Hann er þriðji erlendi leikmaðurinn sem Djúpmenn bæta í sinn hóp í þessum mánuði. Þeir fengu til sín kólumbíska framherjann Orlando Bayona og bandaríska markvörðinn Phil Saunders sem báðir léku með liðinu þegar það vann Tindastól, 6:4, í 1. deildinni um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert