Fyrra bikareinvígið í Árbænum í kvöld

Fylkiskonurnar Anna Björg Björnsdóttir og Selja Ósk Snorradóttir mæta Selfossi …
Fylkiskonurnar Anna Björg Björnsdóttir og Selja Ósk Snorradóttir mæta Selfossi í bikarkeppninni í kvöld. Skapti Hallgrímsson

Fyrri undanúrslitaleikurinn í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu fer fram í kvöld þegar Fylkir tekur á móti Selfossi í Árbænum.

Bæði lið komust áfram eftir vítaspyrnukeppni í átta liða úrslitunum. Fylkir lagði KR, en staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 2:2. Selfoss lagði svo ÍBV þar sem staðan var 1:1 fyrir vítakeppnina.

Bæði lið eru á góðu skriði í Pepsi-deildinni og Fylkir, sem eru nýliðar í deildinni, sitja í öðru sætinu með 20 stig. Selfoss er tveimur sætum neðar með stigi minna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert