Hvít-Rússarnir hrifnir af Kaplakrika

Frá æfingu liðsins í Kaplakrika í gær.
Frá æfingu liðsins í Kaplakrika í gær.

Andstæðingar FH-inga í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld, Neman Grodno frá Hvíta-Rússlandi, tóku létta æfingu í Kaplakrika í gær eftir að hafa komið til landsins. Allir komust heilu og höldnu frá ferðalaginu, nema læknistaska liðsins sem skilaði sér ekki úr fluginu.

Liðið birti fjölmargar myndir af komu sinni til landsins og tók ófáar myndir í félagsheimili FH-inga í Kaplakrika og orðuðu það á heimasíðu sinni að aðstæðurnar væru mjög nútímalegar og eins og best væri á kosið.

Myndaveislu liðsins má finna HÉR, þar sem menn geta einnig spreytt sig í rússneskunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert