Ragna Lóa: Tökum þetta á næsta ári

„Þetta var hörkuleikur á milli tveggja mjög sterkra liða. Þær höfðu þetta í vítaspyrnukeppni sem er auðvitað skítt en ég er bara hrikalega stolt af mínum stelpum,“ sagði Ragna Lóa Stefánsdóttir, þjálfari Fylkiskvenna, í samtali við mbl.is eftir að hennar lið datt úr leik í undanúrslitum bikarkeppninnar gegn Selfossi eftir vítaspyrnukeppni.

Selfoss komst tvívegis yfir í venjulegum leiktíma en Fylkir jafnaði tvisvar áður en vítakeppnin skildi á milli.

„Það sýnir hvað býr í þessu liði, við komum alltaf til baka og hefðum getað stolið þessu í framlengingunni. En þær eru með flott lið, þetta datt bara ekki fyrir okkur í dag,“ sagði Ragna Lóa, en nánar er rætt við hana í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert