Ragnar tryggði Þrótti sigur á Akureyri

Vilhjálmur Pálmason og félagar í Þrótti unnu góðan útisigur í …
Vilhjálmur Pálmason og félagar í Þrótti unnu góðan útisigur í kvöld. mbl.is/Ómar

Þróttur úr Reykjavík er í öðru sæti 1. deildar karla í knattspyrnu, allavega sem stendur, eftir sigur á KA, 1:0, á Akureyrarvelli í kvöld.

Ragnar Pétursson skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins en KA-menn höfðu verið líklegri aðilinn í leiknum og m.a. átt tvö stangarskot.

Leiknir R. er með 27 stig á toppnum, Þróttur R. 24, ÍA 21, HK 21 og KA 20 stig. Leikur ÍA og Grindavíkur hófst klukkan 19.15 og leikur Hauka og HK klukkan 20 þannig að ÍA og HK geta bæði náð Þrótturum á ný í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert