Rúrik með brotið bein í baki

Rúrik Gíslason í landsleik.
Rúrik Gíslason í landsleik. mbl.is/Ómar

Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður FC Köbenhavn í Danmörku, er með brotið bein í bakinu og verður frá keppni af þeim sökum næstu vikur eða mánuði.

Rúrik meiddist í leik gegn Silkeborg í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi þegar hann fékk högg á bakið, ekki ósvipað og Neymar í leik Brasilíu og Kólumbíu á HM fyrr í sumar.

Ekki var talið að meiðslin væru alvarleg en Rúrik sagði við mbl.is að hann hefði farið í myndatöku í dag vegna blæðingar í vöðva.

„Læknirinn sendi mig þá í röngten-myndatöku og þá kom í ljós að beinið væri brotið. Ég veit ákaflega lítið um þetta ennþá, annað en það að beinið situr rétt og það er útlit fyrir að ég þurfi ekki að fara í aðgerð. Ég vona allavega að það gangi eftir," sagði Rúrik en ljóst er að hann missir af leikjum FC Köbenhavn í úrvalsdeildinni og forkeppni Meistaradeildarinnar fram á haustið og ólíklegt er að hann nái landsleik Íslands og Tyrklands í undankeppni EM á Laugardalsvellinum 9. september.

„Já, þetta verða einhverjar vikur, væntanlega, en það er ómögulegt að segja eitthvað um það enn sem komið er. Ég verð bara að taka þessu eins og maður og fara eftir því sem mér er sagt," sagði Rúrik Gíslason við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert