Víkingar í Reykjavík hafa fengið miðjumanninn Pál Olgeir Þorsteinsson lánaðan frá Breiðabliki út þetta tímabil.
Páll er 18 ára gamall og hefur ekki fengið tækifæri í byrjunarliði Kópavogsfélagsins síðan í lok maí og aðeins komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni síðan, eftir að hafa byrjað inná í fjórum af fyrstu fimm leikjum tímabilsins.
Hann kannast við sig í Víkingi eftir að hafa verið þar í láni seinni hluta síðasta tímabils þar sem hann tók þátt í að koma liðinu uppúr 1. deildinni.