Íslenski boltinn í beinni - laugardagur

Leiknismenn geta náð sex stiga forskoti.
Leiknismenn geta náð sex stiga forskoti.

Tveir leikir fara fram í 1. deild karla í knattspyrnu í dag þegar þrettándu umferð deildarinnar lýkur. Fylgst verður með gangi mála í ÍSLENSKI BOLT­INN Í BEINNI hér á mbl.is.

KV mætir botnliði Tindastóls á heimavelli sínum á meðan BÍ/Bolungarvík tekur á móti toppliði Leiknis sem getur náð sex stiga forskoti á toppi deildarinnar.

Dagskráin er eftirfarandi.
14.00 KV – Tindastóll
14.00 BÍ/Bolungarvík – Leiknir

Staðan fyrir leikina: Leiknir 27, ÍA 24, Þróttur 24, Víkingur Ó. 22, HK 21, KA 20, Haukar 17, Selfoss 15, KV 14, BÍ/Bolungarvík 14, Grindavík 13, Tindastóll 3.

Einnig er leikið í 2. deild karla í dag svo eitthvað sé nefnt, en fylgst er með öllu í ÍSLENSKI BOLT­INN Í BEINNI hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert