Varnarmaðurinn Þórður Steinar Hreiðarsson hefur samið við Val um að leika með knattspyrnuliði félagsins í Pepsi-deild karla það sem eftir lifir leiktíðar.
Þórður Steinar hefur verið í námi í Danmörku og ekkert spilað í sumar en var síðast í herbúðum Locarno í Sviss og lék með liðinu í B-deildinni þar í landi frá áramótum til vors.
Greint er frá vistaskiptum Þórðar á fotbolta.net í dag. Þórður getur leyst stöðu hægri bakvarðar og miðvarðar. Hann er 27 ára og lék síðustu þrjár leiktíðir með Breiðabliki en áður með Þrótti og hóf ferilinn með Val.