Fanndís: Hefði getað verið stærra

Fanndís Friðriksdóttir átti góðan leik og skoraði tvö mörk í 4:0 sigri Breiðabliks á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Annað sæti deildarinnar var í húfi og Fanndís segist ekki hafa búist við svona öruggum sigri.

„Nei í rauninni ekki, en við erum með hrikalega gott lið og það hefði getað farið stærra í seinni hálfleik þar sem vörnin galopnaðist hjá þeim,“ sagði Fanndís sem fannst mikilvægt að fá leik svo skömmu eftir ósigurinn gegn Stjörnunni í undanúrslitum bikarsins á föstudag, en það var erfitt að hrista það af sér.

„Það tók tíma skal ég segja þér, en við þurfum að gera það til að halda áfram. Sem betur fer var stutt í næsta leik svo við þurftum ekki að dvelja við hann lengi. Við erum að keppa um þetta annað sæti eins og staðan er núna og við ætlum okkur að halda því,“ sagði Fanndís, en nánar er rætt við hana í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert