Kristinn Jakobsson milliríkjadómari í knattspyrnu mun dæma fyrri leik Dinamo Moskvu frá Rússlandi og ísraelska liðsins Hapoel Kiryat í 3. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA á fimmtudagskvöld. Leikið verður í Khimki í Rússlandi.
Kristni til aðstoðar verða Gunnar Sverrir Gunnarsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Þóroddur Hjaltalín verður svo einnig með í för sem varadómari.